Jæja, kæru Blakarar – gleðilegt nýtt ár! Ég ákvað að fara aðeins út úr þægindarammanum á fyrsta mánuði ársins og athuga hvort ég gæti gert eitthvað lostæti í heilan mánuð sem væri Paleo. Sem sagt, sem inniheldur ENGAN sykur og EKKERT hvítt hveiti!
Það fyrsta sem ég prófaði er þetta ofureinfalda Paleo-súkkulaði og það gekk eins og í sögu! Mjög bragðgott súkkulaði sem inniheldur í raun bara þrjú hráefni, ef maður bætir engu út í það, og er alveg hreint prýðilegt á bragðið. Bragðið er afskaplega mikið og sterkt og því getur maður ekki gúffað þessu í sig endalaust sem er ákveðinn plús fyrir konu eins og mig. Svo þarf ég líka ekki að leita að Paleo-súkkulaði í uppskriftir mánaðarins.
Þannig að – nú er komið að fyrstu Paleo-uppskriftinni minni í janúar. Gjöriði svo vel!
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
- 1/2bolli brædd kókosolía
- 1/2bolli hreint kakó
- 2-3msk hunang
- 1/2tsk sjávarsalt(ef vill)
- 1/2tsk vanilludropar(ef vill)
- Setjið olíu, kakó og hunang í pott yfir vægum hita og hrærið saman þar til allt er bráðið og blandað saman.
- Bætið salti og vanilludropum saman við, hellið blöndunni í form og látið storkna í ísskáp.
- Athugaði - það er hægt að bæta hnetum út í súkkulaðið (ekki salthnetum samt - þær eru ekki Paleo) eða annars konar bragðefni, til dæmis piparmyntudropum. Athugið líka að súkkulaðið verður fljótt lint við stofuhita og því best að geyma það í ísskáp eða frysti.
The post Einfaldasta Paleo-súkkulaði í heimi appeared first on Blaka.is.